BarTender miðahönnunarhugbúnaður
Boðtækni er söluaðili fyrir BarTender hugbúnaðinn. BarTender hefur verið einn leiðandi hugbúnaður í heiminum á sínu sviði frá árinu 1985. Hugbúnaðurinn byggir á hönnun og uppsetningu límmiða og hefur frá upphafi verið í stanslausri þróun og fylgt eftir allri þeirri tækni sem orðið hefur á þessu sviði. BarTender er í senn einfaldur í notkun en býður upp á ótal möguleika, s.s. uppsetningu og prentun á límmiðum, strikamerkjum, RFID og kortum, og hægt er að tengja hann við flestar gerðir gagnagrunna. BarTender hentar því sérstaklega vel öllum fyrirtækjum, stórum sem smáum, hvort sem um er að ræða sjávarútveg, matvælaframleiðslu, verslun, heildverslun, heilsugæslu eða önnur iðnaðar-, framleiðslu- og flutningafyrirtæki, bæði til sjós og lands.





Myndasafn
Myndir endurheimtar úr núverandi vef Boðtækni fyrir þennan vöruflokk.




